MG FASTEIGNIR var stofnuð í janúar 2016 og rekin af MG Lögmönnum ehf. Fasteignasalan er staðsett í miðbæ Mosfellsbæjar að Háholti 14, Mosfellsbæ. Ábyrgðarmaður er Margrét Guðjónsdóttir lögmaður og löggiltur fasteigna-, fyrirtækja og skipasali. MG FASTEIGNIR leggja áherslu á persónulega þjónustu þar sem unnið er af þekkingu og heilindum. Lögmaður og löggiltur fasteignasali er umsjónarmaður við allt ferli fasteignasölunnar. Löggiltur fasteignasali er í félagi fasteignasala og lögfræðimenntaður frá Háskóla Íslands. Fasteignasalan fylgir siðareglum félags fasteignasala og gætir þess að hagsmunum kaupanda og seljanda sé faglega sinnt og af kostgæfni. Ljósmyndari tekur myndir af fasteigninni. Hlökkum til að sjá ykkur.
Sjá staðsetningu á korti.